KFUM & KFUK Digraneskirkju | 10-12 ára starf

jæja núna erum við að byrja aftur

 Jæja kæru krakkar!

Núna á eftir er fyrsti fundur haustsins og þá bjóðum við sérstaklega velkomin í hópinn þá sem eru í 5. bekk. =D

En það er gaman að segja ykkur frá því að við höfum fengið til okkar nýjan forstöðumann sem er frábær, en líka pínulítið skrítinn... Hann heitir Gísli Davíð. svo er Andrea Rakel líka komin aftur og þau ykkar sem eruð í 7. bekk þekkja hana líklegast mjög vel =D

Við minnum ykkur svo á að fundartíminn hefur breyst örlítið, það er að segja að húsið opnar klukkan 16:45 og opið hús er til klukkan 17:15. Fundinum lýkur svo klukkan 18:30.

hlakka til að sjá ykkur á eftir!

Sjáumst

Telma Ýr

Telma | 08.09.2009, 10:27 - 1 hefur talað

Velkomin á vefsíðu 10-12 ára starfs KFUM og KFUK

Hér má upplýsingar um starfið, dagskrá, fréttir, myndir o.fl.

KFUM og KFUK heldur fundi fyrir 10-12 ára stráka og stelpur í Digraneskirkju. Fundir eru haldnir á þriðjudögum. Húsið opnar klukkan 16:45 og þá er hægt að fara í ýmis leiktæki. Fundur hefst klukkan 17:15 og stendur í rúma klukkustund. Miðað er við að fundi ljúki kl. 18:30, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Starfið er í samvinnu við Digranessókn.

Hvað er KFUM og KFUK?

KFUM og KFUK er frjáls félagasamtök sem standa á sama grunni og evangelísk-lútherska þjóðkirkjan á Íslandi. Þau vilja starfa innan kirkjunnar og með kirkjunni, en eru þó sjálfstæð og lúta eigin stjórn. Með starfi sínu vilja þau vera þátttakendur í skírnarfræðslu kirkjunnar og styðja foreldra í trúarlegri mótun barna sinna.

Starf KFUM og KFUK er umfangsmikið og fjölbreytt:

Á veturna fer fram barna- og unglingastarf í um 40 deildum víða um land sem halda fundi einu sinni í viku. Íþróttamót og hátíðir eru fastur liður í starfinu ásamt styttri og lengri vettvangsferðum.

Á sumrin taka við sumarbúðir sem KFUM og KFUK reka á fimm stöðum á landinu og leikjanámskeið sem haldin eru í Reykjavík og Kópavogi.

Fullorðinsstarf er mikilvægur þáttur félagsstarfs KFUM og KFUK , samkomur, fræðandi og uppbyggilegir fundir, námskeiðahald, helgarsamverur í sumarbúðum félagsins og fleira.

Leikskólinn Vinagarður er kristilegur leikskóli, staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er einkaskóli og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi.

Guðmundur Karl | 07.09.2009, 22:50 - Talaðu nú

Sýna allar fréttir